26.5.2008 | 15:48
...og eftir voru tveir
Nú er ég komin heim í heiðarlandið græna til að skrifa BA-ritgerðina mína en Vala og Rut eru enn í sandkassaleik í Póllandi. Síðasta fimmtudag var frídagur og við fórum allar þrjár til Varsjá og eyddum deginum í að flakka á milli veitingastaða og borða og drekka. Um kvöldið horfðum við svo auðvitað á Júróvisión á hostelinu sem við gistum á. Ég flaug svo heim á föstuadgsmorgninum en stelpurnar stefnudu á verslunarleiðangur. Mig grunar að hann hafi falið í sér ferð í móðurskipið mikla sem við vorum búnar að labba fram hjá nokkuð oft og "windowshoppa". Það er svo sem ekki mikið að segja frá ferð minni heim nema að veðrið í Köben var frábært og ég komst á endanum heim eftir töluverða seinkun með sólbrunna fótleggi.
Við vorum búnar að lofa myndum fyrir löngu svo það er ekki seinna vænna en að setja inn smá myndasýningu.
Þetta er húsið sem við bjuggum í. Að utan lítur það bara vel út. Herbergið okkar er á efri hæðinni til vinstri þar sem svalarhurðin er.
Svona leit herbergið okkar út. Ógeðið er kannski erfitt að festa á filmu en takið eftir skítablettunum á teppinu. 5 sek reglan gilti sko ekki þarna!
Þessi mynd er tekin í eldhúsinu. Takið eftir veggjakrotinu. Kisan heitir Masha og á von á kettlingum any day now og var orðin soldið skrítin af hormónum. Ég held líka að hún sé ákveðin að gjóta í herberginu okkar eftir að hún komst í snakk þar inni svo við urðum að passa vel að hún laumaðist ekki þangað inn.
Þetta er svæðið sem við vorum að grafa á. Búið var að opna tvo svona skurði, hvor ca. 100 m langir og 20 m breiðir.
Svo leit annar skurðurinn út áður en "objectin" voru grafin upp. Þau eru svörtu mislitnirnar sem sjást.
Eitt af "objectunum" sem við grófum upp.
Ég set fleiri myndir inn seinna.
Eva
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008 | 20:05
Kraká - Auschwitz - Varsjá - Wiskitki
Halló allir...
Við erum á þessari stundu á hosteli í Warsjá með þráðlaust netsamband takk fyrir! (þessi færsla er skifuð uppí rúmi..híhí) við vorum búnar að lofa myndum um seinustu helgi en vorum ekki jafn heppnar með nettengingu og við héldum. seinasta helgi fórum við semsagt til Kraká og skoðuðum okkur um og heimsóttum móðurskipið (HM) þar sem við gátum verslað örlítið...enda neyddumst við til því við erum alveg að verða búnar með öll hreinu fötin okkar *hóst*. Á sunnudaginn fórum við að skoða safnið í Auschwitz þar sem við sáum heilu herbergin af mannshári og persónulegum eigum fólksins (gyðingana) sem var sent þangað (úff). Svo á mánudaginn var stefnan tekin á Wawel kastalann en hann var ekki opinn nema að hluta svo að við drifum okkur bara "heim" í sveitina enda frekar langt ferðalag (4 tímar í 2 lestum, rúta í 10 mín og hálftíma labb) Í vinnunni í gær vorum við svo látnar teikna heimsins lengsta prófíl...50 metra langan! það var nú ekkert svo slæmt en í dag var bara grenjandi rigning (fyrsta skiptið!) en við vorum eina fólkið á svæðinu sem var í regngalla múhahah....
núna erum við bara að leka niður úr þreytu og erum að spá í að fara að hátta....enda klukkan orðin 10 sem er háttatími hjá vinnandi fólki eins og okkur ;)
Eva kemur heim á föstudaginn en í dag eru 2 vikur eftir hjá okkur Völu...
meira seinna....
Later peeps ;)
- Rut og félagar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 17:02
Thrir karfar
Vedrid er buid ad leika vid okkur herna i Pollandi og er thad farid ad sjast a hudlitnum okkar. Solarvornin hennar Rutar fra Holum er samt ad bjarga thessu fyrir okkur (rosa god ending!). Polverjarnir voru svaka hissa ad vid vaerum med spf 30 thvi slikt faest ekki her.
Helst i frettum er ad Eva og Rut foru i svadilfor til naesta baejar til ad kaupa i matinn. Enginn gat keyrt okkur og vid ordnar matarlausar svo thad var litid annad ad gera en ad arka af stad. I stuttu mali tok thtta adeins 4 tima og nokkrar skramur, blodrur og auma vodva eftir ad burdast med matveali fyrir naestu vikuna heim. Vid akvadum ad stytta okkur leid yfir akra og tun ut af thvi ad thetta leit ut fyrir ad vera svo stutt a leidinni i budina. Otrulegt hvad solin getur blekkt fjarlaegdarskynid... En ef vid litum a bjortu hlidina saum nokkud af villta dyralifinu i Pollandi!
I dag grofum vid upp 2500 ara gamalt eldstaedi. Mikid af uuuu og oooo fylgdi thvi og mikid af myndum teknar (ekki lata ykkur bregda ef thid sjaid thaer i polsku dagbladi). Agaetis tilbreyting ad fra hinum endalausu "blobbum" sem vid erum bunar ad grafa.
A morgun forum vid til Krakow og verdum fram a sunnudag eda manudag. Aetlum ad skoda baeinn og fara til Auschwitz. Aetli vid eigum ekki eftir ad meta betur adstaedurnar herna sem Islendingum fyndist liklega frekar... hrorlegar. Vid skrifum meira um helgina thvi tha verdum vid med betra netsamband og hver veit nema ein eda tvaer myndir gaetu laumad ser med.
Kvedja,
Bleik, Bleikari og Bleikust
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2008 | 15:54
Tak!
hallo allir.
Erum staddar a netkaffihusi i varsja. Netsambandid i husinu okkar er ekki gott og getum tvi midur ekki bloggad oft. Vid buum semsagt i einbylishusi uti i sveit um 10 min fra uppgraftarsvaedinu. Husid hefur verid rosa flott einusinni...
Svaedid er mjoooog stort fyrir okkur islendingana, endalaust af "blobbum" til ad grafa i. Tad blobb sem vid hofum verid ad grafa mest i er fra 500 fyrir krist en a svaedinu er einnig haegt ad finna neolithic minjar og minjar fra 200 eftir krist. I blobbinu okkar fundum vid helling af keramiks brotum og einn jarnbut, sem var svo merkilegur fundur ad allir turftu ad koma og sja! Bronsoldin var semsagt ekki eins lengi i Pollandi eins og haldid var...
Her eru vinnumenn sem sja um ad grafa, vid gerum ekki svoleidis skitaverk. Svo er mikid um tad ad menn komi og taemi hjolborur fyrir okkur stelpurnar, enda virdast polskar konur ekki vera sterkar... (lesist horrenglur)
Um helgina vorum vid i varsja ad skoda ymislegt. A fostudagskvoldid forum vid a biker rokk klubb i einhverju nedanjardarbyrgi, allir med sitt har og i ledurjokkum. Fornleifafraedingarnir sem vinna med okkur eru allir frekar ungir, og tetta er teirra stadur. Svo gistum vid heima hja vini Roberts uppgraftarstjora, vinurinn for og gaf okkur lyklana af ibudinni... Eg og Eva lulludum a hordu golfi og Rut i hnipri i litlum sofa. Her virdast rum ekki vera naudsyn.
I gaer (laugardag) forum vid med einka-guide (straki sem vinnur vid uppgroftinn) um borgina og saum t.d. gamla baeinn (sem er reyndar bara ur seinni heimstyrjold tar sem allt var lagt i rust), vid forum a tjodminjasafn (flest reyndar stolnir gripir fra odrum londum), saum lika holl i gamla baenum sem var mjog flott en hun var lika endurbyggd eftir strid. I Pollandi er tad greinilega sidur ad halda hurdum opnum fyrir kvenfolki og hleypa teim fyrst i gegnum allar dyragaettir... pinu spes ad venjast tvi. Nu gistum vid i annari ibud i uthverfi varsja og erum bara ordnar duglegar ad rata, bunar ad taka straeto og nedanjardarlest. Tessa ibud a annar vinur Roberts og sa let okkur einnig fa lyklana sina og for svo einhvert sjalfur.
I fyrramalid forum vid svo aftur a svaedid. Naestu helgi aetlun vid til Krakow og skoda Auswitch.
Kvedja, Vala og hinir grisirnir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.5.2008 | 07:57
Dobra!
hae allir. nu erum vid komnar til pollands. vedrid er gott og mikid um kisur (thar af ein kettlingafull...jeiii! vonum bara ad hun gjoti ekki i toskurnar okkar) og hunda. adbunadur er framar vonum, svalirnar ennta a husinu og allt! skrifum meira tegar vid komumst i betra netsamband og skellum kannski inn nokkrum myndum ta.
nu aetlum vid ad fara ad skoda uppraftarsvaedid sem er risa stort.
later peeps :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.4.2008 | 13:13
Testing 1, 2, 3
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)







